Velkomin í vefverslun Funshine sem er í eigu og rekstri Kristínar Stefánsdóttur kt. 010173-2999. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Funshine.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Funshine samþykkir þú þessa skilmála.

1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR

Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.

2. VÖRUR TIL EINKANOTA

Vörurnar í vefverslun okkar eru til persónulegra nota eingöngu. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum okkar án tilskilinna leyfa. Við áskiljum okkur rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.

3. VÖRUÁBYRGÐ

Hverri vöru fylgir lýsing á viðeigandi notkun, bæði í vefverslun og á umbúðum. Ef þú notar vörurnar á annan hátt en notkunarleiðbeiningarnar kveða á um erum við ekki skaðabótaskyld né er unnt að krefja okkur um endurgreiðslu.

4. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA

Við kappkostum að hafa réttar lýsingar og vörumyndir í vefverslun okkar. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

5. VERÐ

Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. Virðisaukaskattur er innifalinn í verði og sendingar innanlands eru ókeypis. Sendingarkostnaður til útlanda reiknast sérstaklega fyrir hverja sendingu (ég heyri í ykkur með tölvupósti fyrst).

6. FERILL PANTANA

Þegar þú hefur lokið við að panta í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar. Þegar vara er farin í póst berst þér staðfesting þess eðlis. Ekki er boðið upp á „tracking code“ í íslensku vefversluninni. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga en póstsending getur tekið 1-4 daga.

7. GREIÐSLULEIÐIR

Eftirfarandi kort er hægt að nota í vefverslun okkar:
  • Visa
  • Mastercard
  • Amex
  • Diners
  • Maestro (veltur á þjónustuaðila korthafa)
Greiðslan mun birtast á kortayfirliti þínu á sama hátt og almennar færslur í verslun.

8. GREIÐSLUVANDAMÁL

Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

9. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS

Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Notast er við SSL kóðun til að tryggja dulkóðun kortanúmersins og annara persónugagna, en kóðunin uppfyllir ströngustu kröfur um gagnavernd á netinu. Undir lok pöntunarinnar flytur síðan þig yfir á https-svæði þar sem þú setur inn kortaupplýsingar.
Hins vegar geta gamlir vafrar verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota.
Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.

10. SENDINGAR

Við gerum okkar besta til að tryggja þér bestu og skjótvirkustu sendingarleiðir sem völ er á, en sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda. Einungis er sent innan Íslands. Sendingar innanlands eru ókeypis. Sendingarkostnaður til útlanda reiknast sérstaklega fyrir hverja sendingu (ég heyri í ykkur með tölvupósti fyrst).

11. BREYTINGAR Á PÖNTUN

Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum kl. 8-16. Við mælum með því að þú yfirfarir pöntunina vel áður en þú lýkur við hana. Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á kristin@funshine.is.

12. HÖFUNDARÉTTUR

Allt efni í vefverslun, þ.m.t. vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir, grafík, hljóð og mynd, er í eigu okkar og er höfundarvarið af bæði íslenskum lögum og alþjóðalögum.
Ekki er heimilt að nota, afrita eða selja efni af síðunni án skriflegs samþykkis okkar.

13. ÁBYRGÐ OG SKULDBINDING

Vefverslun þessi er opin öllum en við erum ekki ábyrg fyrir rangri notkun síðunnar né erum við skuldbundin til að eiga alltaf allar vörutegundir til á lager. Við bjóðum upp á endurgreiðslu vara innan 14 daga frá kaupum ef viðkomandi er óánægður með vöruna, en greiðum ekki sendingarkostnað ef vörur eru sendar til baka. Athugið að taka þarf fram hvað það var sem að óánægja var með og pöntunarnúmer skal sent á netfangið kristin@funshine.is.

14. SKILAREGLUR

Samkvæmt lögum hafa viðskiptavinir rétt til að skila vöru sem keypt er í vefverslun, og fá að fullu endurgreidda, ef henni er skilað innan 14 daga frá kaupum. Kostnaður við að skila vörunni, s.s. sendingarkostnaður, greiðist af kaupanda. Kaupandi er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi.

ALMENNAR UPPLÝSINGAR

Seljandi er Funshine.
Nafn: Kristín Stefánsdóttir
Heimilisfang: Bugðutangi 30
Kennitala: 010173-2999
Símanúmer: 618-4108
Netfang: kristin@funshine.is
VSK númer: 103402